14.11.2008 | 17:34
Borgaði fyrir svona kvikindi
Ég lagði leið mína í Krónuna í september þar sem ég fjárfesti í tvemur pökkum af stórum bökunarkarteflum innpökkuðum. Um var að ræða 6 stykki af stærðarinnar kartöflum. Karteflurnar áttu að vera með kjöti sem ég ætlaði að grilla um kvöldið. Kjöt kaupin töfðust eitthvað og var því planið að hafa karteflurnar seinna í vikunni. Að lokum var karteflunum skellt á grillið og eftir klukkutíma setu á grillinu komu þær inn.
Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að vera að setja þær á grillið og var nokkuð nálægt því að taka álpappírinn utan af þeim og skella þeim inní ofn. En á grillið fóru þær. Þegar var komið að því að kalla alla við matarborðið ákvað ég nú að byrja að taka utan af karteflum fyrir krakkana svo þær myndu kólna áður en þau kæmu til borðs.
Maðurinn minn tók utan af fyrstu karteflunni og var byrjaður að stappa ofan í krílið meðan ég vel þá næstu. Ég ákveð að taka eina í minni kantinum en það var nú ekki hægt að kalla hana litla fyrir því því þetta voru stærðarinnar karteflur. Ég tek álið til hálfs af og byrja að skralla öðru megin meðan ég tala við manninn minn. Þar sem að ég er upptekin við að tala þá er ég nú ekkert að skoða kartefluna nákvæmlega.
Þegar ég loksins lít á kartefluna þá spái ég í því hvað hýðið er furðulegt í laginu því það koma svona eins og tveir og tveir angar sitthvorum megin við kartefluna, soldið eins og eitthvað haldi utan um kartefluna. Ég sný karteflunni við með hnífnum og í ljós kemur þetta stærðarinnar pöddu-kvikindi sem að hélt utan um kartefluna. Ég er ekki vön svona stórum pöddukvikindum þannig að ég fann hrollin renna upp eftir hryggnum á mér og upp í hvirfilinn.
Þetta risastóra ljóta flykki var nákvæmlega eins og þið sjáið á mynd fréttarinnar. Orðið engispretta var fljótt að skjótast uppí kollinn á mér. Ég veit að það tíðkast að borða grillaðar engisprettur einhverstaðar en Guð minn góður hvað ég var fljót að pakka saman kvikindinu aftur inn, eftir að ég og maðurinn minn vorum búin að skoða þetta kvikindi. Paddan og karteflan fóru beinasta leið út í ruslatunnu ásamt hinum karteflunum.
Matarlistinn þetta kvöldið var nákvæmlega engin og hin dýrindismáltíð sem ég hafði eytt klukkutíma í að elda fór að megninu til í ruslið líka. Næstu tvo daga gat ég ekki horft á mat án þess að hugsa um þetta kvikindi. Þegar ég sagði pabba frá þessu spurði hann mig afhverju ég hafði ekki skutlað henni upp á Náttúrufræðistofnun. Ég hélt nú ekki að geyma þetta kvikindi inni hjá mér frá föstudags til mánudags svo að ég gæti farið að sýna öðru fólki þetta. Mig langaði ekki einu sinni að fara aftur með þetta í búðina, samofið karteflunni, til þess að kvarta yfir þessu.
Það sem mér fannst merkilegast við þetta var hvernig í bíb iddi bíb einhver kartöfluinnpökkunar starfsmaður gat pakkað þessu stærðarinnar kvikindi með karteflunni. En ógeðslegasta tilhugsuninn var að í næstum viku var þetta kvikindi inní ísskápnum hjá mér, jakk.
Eftir þetta hef ég nú ekki getað borðað grillaða karteflu en það kemur einn daginn að því. Það verður alla vega langt þangað til að ég kaupi innpakkaðar karteflur frá þessum framleiðanda sem er íslenskur.
|
Engispretta á Ísafirði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2008 | 14:01
Styttum vinnutímann í kreppunni
Ætli ég sé ekki ein af fáum sem erum jákvæð í kreppunni. Að sjálfsögðu er málið há-alvarlegt en ég ætla ekki að vera að eyða mínum tíma í að liggja í einhverju kvíðakasti sem skilar sér engann veginn. Það hafa víst komið nokkrir kvíðahnútar í magann þegar von er á yfirlýsingum forsetisráðherra en ekkert óeðlilegt við það enda veit maður aldrei hverju maður á von á.
Það eru fullt af tækifærum sem að þessi kreppa bíður okkur sem við ættum að nýta okkur þó að það virðist svart í fyrstu.
Styttum vinnutíma Íslendinga.
- Er þetta ekki tækifærið sem allir hafa beðið eftir. Þó að aðstæður séu ekki þær bestu þá er tíminn núna. Í staðinn fyrir að segja upp Kalla og Jóa þá stytta bara allir vinnutímann sinn til 14-15 og Kalli og Jói halda vinnunni. Hljómar einfalt af því að það er það. Hér er samstaða lykilorðið kæru félagar.
- Það eru allir í þjóðfélaginu stressaðir yfir því að missa vinnuna við svona aðstæður, afhverju ekki að virkja samhyggjuna hérna. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Ef allir eru hvort eð er að vinna til tvö þá er það bara eins og þegar allir vinna til sjö, þetta er vel hægt people.
- Börnin eiga eftir að njóta góðs af þessu líka. vandinn um manneklur í hinum og þessum daggæslu stofnunum leysist þó að stór hluti barna haldi áfram að nýta þjónustuna. Enda er betra fyrir öll börn að mamma og pabbi hittist og ræði málin áður en þau hitta barnið. Því ekki hafa börnin gott af því að sitja undir umræðum mömmu og pabba um kreppuna og annað slíkt.
- Danska hamingjan á þetta.
- Svo hafa rannsóknir sýnt að fólk afkastar alveg jafnmiklu þó það vinni bara í 6 tíma heldur en 8-9 tíma. Enda fólk þá ekki eins upptekið að hanga á msn og netinu ef það hefur hvorteð er meiri tíma seinnipart dags.
Stöndum saman Íslendingar og njótum góðs af. Bjartsýni borgar sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


ingabesta
svarthamar